Málvísindastofnun Háskóla Íslands

1.jpg

Ráðstefnur á næstu mánuðum (enn hægt að senda inn útdrátt):

  • The 11th International Workshop on Treebanks and Linguistic Theories. Lissabon 30. nóv. - 1. des. 2012. Frestur til að senda inn útdrætti til 2. sept. 2012. Nánari upplýsingar á slóðinni http://tlt11.clul.ul.pt/.

Ráðstefnur á næstu mánuðum (hægt að skrá sig, of seint að senda inn útdrátt):

  • The 11th International Conference of Nordic and General Linguistics, Freiburg 18.-20. apríl 2012. Sjá nánar hér.
  • The 8th International Conference on Language Resources and Evaluation (LREC) verður haldin í Istanbul 21.-27. maí 2012. Sjá nánar hér.
  • Debrechen Workshop on Argument Structure (WAS), University of Debrecen, 25.-27. maí 2012. Alþjóðleg ráðstefna um rökliðagerð (merkingarhlutverk frumlags, andlags o.s.frv.). Sjá nánar hér.
  • The 27th Comparative Germanic Syntax Workshop (CGSW27), 31. maí-1. júní, skipulögð af Yaleháskóla og University of Connecticut og haldin við Yale, New Haven, Connecticut. Sjá nánar hér
  • Non-Canonically Case-Marked Subjects within and across Languages and Language Families: Stability, Variation and Change, Reykjavík og Hótel Fljótshlíð, 4.-8. júní 2012. Sjá nánar hér.
  • Norræn ráðstefna um hugræn málvísindi, Osló 10.-11. júní 2012. Sjá nánar hér.
  • The 14th Diachronic Generative Syntax conference, Lissabon 4.-6. júlí 2012. Nánari upplýsingar á slóðinni http://digs14.clul.ul.pt/.
  • 15th EURALEX International Congress, Osló 7.-11. ágúst 2012. Sjá nánar hér.
  • Félagsmálfræðileg ráðstefna, Berlín 22.-24. ágúst. Sjá nánar hér.

Fyrirlestrar um málfræðileg efni á næstu dögum:

Engir skráðir.

Sjá einnig fréttir Íslenska málfræðifélagsins.

Upplýsingar um rannsóknastyrki og umsóknarfrest:

  • Styrkumsóknadagatal Hugvísindastofnunar: Yfirlit yfir styrki og umsóknarfresti. Sjá hér
  • Evrópustyrkur (ERC) til reyndra rannsóknamanna. Umsóknarfrestur til 11. apríl 2012. Nánari upplýsingar hér
  • Evrópustyrkur (HERA) vegna "menningarmóta" (cultural encounters). Forumsókn 4. maí 2012 (á hádegi!). Nánari upplýsingar hér
  • Rannsóknasjóður (í gegnum RANNÍS). Umsóknarfrestur til 1. júní. Nánari upplýsingar hér

Viðburðir á næstunni


    Starfsreglur fyrir Málvísindastofnun Háskóla Íslands

    

    1. gr.: Almennt

    Málvísindastofnun Háskóla Íslands er vísindaleg rannsóknastofnun, starfrækt sem grunnstofnun innan vébanda Hugvísindastofnunar Háskóla Íslands.

     

    2. gr.: Hlutverk

    Hlutverk Málvísindastofnunar er:

    1. Að vera vettvangur rannsókna í málvísindum og undirgreinum þeirra, ein eða í samvinnu við aðra;
    2. Að gangast fyrir útgáfu, ráðstefnum, fyrirlestrum og hvers kyns annarri starfsemi sem stutt gæti rannsóknir og kennslu í málvísindum og eflt tengsl við alþjóðlegt háskólasamfélag sem og við íslenskt þjóðlíf;
    3. Að veita rannsóknanemum, nýdoktorum og gestafræðimönnum aðstöðu og tækifæri til rannsóknastarfa eftir því sem kostur er og efla um leið tengsl rannsókna og kennslu.

    Stjórn Málvísindastofnunar getur ákveðið, að fengnu samþykki félagafundar eða ársfundar og í samráði við stjórn Hugvísindastofnunar (sbr. 4. gr. reglna  um Hugvísindastofnun Háskóla Íslands), að koma á fót rannsóknastofum sem sinna tilteknum rannsóknaverkefnum, rannsóknasviði eða samstarfi sem fellur að hlutverki Málvísindastofnunar.

     

    3. gr.: Fjármál og rekstur

    Stofnunin fær árlegt framlag sem stjórn Hugvísindastofnunar ákveður hverju sinni. Stofnunin getur auk þess fengið framlag til einstakra verkefna úr sjóði Hugvísindastofnunar. Stofnunin aflar eigin tekna eftir því sem kostur er.

    Stofnunin nýtur þjónustu Hugvísindastofnunar um bókhald og daglegan rekstur eftir samkomulagi formanns stjórnar Málvísindastofnunar og stjórnarformanns Hugvísindastofnunar hverju sinni. Fjárhagsáætlun ásamt yfirliti yfir rekstur liðins árs skal lögð fyrir forseta Hugvísindasviðs og stjórn Hugvísindastofnunar til samþykktar. Stofnunin á aðild að sameiginlegu húsnæði Hugvísindastofnunar.

    Reikningshald stofnunarinnar skal vera hluti af reikningshaldi Háskólans.

     

    4. gr.: Aðild

    Fastir kennarar í íslenskri málfræði, almennum málvísindum og táknmálsfræði innan Íslensku- og menningardeildar Háskóla Íslands eru félagar í Málvísindastofnun, nema þeir óski eftir og fái aðild að annarri grunnstofnun. Stundakennarar, sérfræðingar og styrkþegar stofnunarinnar, doktorsnemar á fagsviðum stofnunarinnar og aðrir kennarar við Háskóla Íslands geta sótt um og fengið aðild að stofnuninni með samþykki stjórnar á meðan þeir eru í námi eða starfa við Háskólann. Einungis fastir kennarar á Hugvísindasviði Háskóla Íslands hafa atkvæðisrétt á ársfundi.

     

    5. gr.: Stjórn og hlutverk

    Forseti Hugvísindasviðs skipar Málvísindastofnun þriggja manna stjórn til þriggja ára í senn.

    1. Félagar í Málvísindastofnun tilnefna, á grundvelli kosningar á ársfundi, formann stjórnar úr hópi fastra kennara.
    2. Einnig tilnefnir ársfundur einn meðstjórnanda og annan til vara úr hópi félaga og skal að minnsta kosti annar þeirra vera fastur kennari.
    3. Þriðji stjórnarmaðurinn er doktorsnemi á fagsviðum stofnunarinnar sem Félag doktorsnema á Hugvísindasviði hlutast til um að þeir velji úr sínum hópi.

    Einungis félagar í Málvísindastofnun geta setið í stjórn. Meðstjórnandi er varaformaður stjórnar sé hann fastur kennari. Ef svo er ekki skal varamaður í stjórn taka sæti formanns ef hann forfallast eða þarf að víkja sæti.

    Stjórnarformaður hefur umsjón með daglegum rekstri og fjármálum stofnunarinnar og gengur frá tillögum að rekstraráætlun. Hann á sæti í stjórn Hugvísindastofnunar.

    Stjórnin útfærir stefnu Málvísindastofnunar og ber ábyrgð á framkvæmd hennar. Stjórnin ber ábyrgð á fjármálum stofnunarinnar og daglegum rekstri gagnvart stjórn Hugvísindastofnunar og forseta Hugvísindasviðs. Stjórnin sker úr í vafaatriðum sem upp kunna að koma og varða innri starfsemi stofnunarinnar.

    Formaður stjórnar boðar stjórnarfundi bréflega, eða í tölvupósti, með þriggja daga fyrirvara. Fundarboð skal greina frá dagskrá fundar.

    Skylt er að boða stjórnarfund óski meirihluti stjórnar þess. Sama gildir ef forseti Hugvísindasviðs eða rektor ber fram slíka ósk og hefur þá hann, eða sá sem sækir fund í umboði hans, málfrelsi og tillögurétt á fundinum.

    Falli atkvæði jöfn á stjórnarfundi ræður atkvæði formanns eða þess sem gegnir formannsstörfum.

    Halda skal gerðabók stjórnar og skulu staðfestar fundargerðir færðar í hana.

     

    6. gr.: Ársfundur og félagafundur

    Ársfund skal halda á fyrsta ársfjórðungi hvers árs. Formaður skal boða til hans með a.m.k. einnar viku fyrirvara bréflega eða með tölvupósti. Ársfundur tilnefnir fulltrúa í stjórn (sbr. 5. gr.) og fjallar um stefnu stofnunarinnar. Aðeins fastir kennarar á Hugvísindasviði hafa atkvæðisrétt á ársfundi.

    Fari þriðjungur félaga í Málvísindastofnun fram á það skal boða sérstakan félagafund. Sömu reglur um atkvæðisrétt gilda fyrir félagafund og ársfund.

     

    7. gr.: Réttindi og skyldur félaga

    Félagar geta sótt um aðstöðu, þjónustu og styrki til Málvísindastofnunar og Hugvísindastofnunar. Þeir geta birt greinar og rit, sótt um styrki, skipulagt ráðstefnur, fyrirlestra og samstarfsfundi, rannsóknarverkefni og samvinnu í nafni stofnunarinnar, með samþykki ársfundar eða stjórnar í umboði hans eftir því sem tilefni er til. Félagar eiga rétt til setu á ársfundi. Formaður stjórnar getur falið einstökum félögum trúnaðarstörf á vegum stofnunarinnar.

     

    8. gr.: Gildistaka

    Starfsreglur þessar, sem stjórn Hugvísindastofnunar hefur sett að fenginni tillögu stjórnar Málvísindastofnunar, sbr. 2. mgr. 4. gr. reglna um Hugvísindastofnun Háskóla Íslands nr. 1022/2009, taka gildi 1. október 2010. Um leið falla úr gildi eldri starfsreglur. Núverandi stjórn stofnunarinnar sem skipuð var skv. eldri reglum heldur umboði sínu og starfar í samræmi við ákvæði í þessum reglum fram að næsta ársfundi.