Mállýskuráðstefna 2018
Ellefta norræna mállýskuráðstefnan verður haldin í Reykjavík 20.-22. ágúst 2018, á vegum Málvísindastofnunar og Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Á ráðstefnunni verða sjö málstofur og alls um 60 erindi. Boðsfyrirlesarar eru Agnete Nesse, Jenny Öqvist og Kristján Árnason.
Skráning á ráðstefnuna er hafin. Almennt ráðstefnugjald er 14 þús. kr. en 10 þús. kr. fyrir stúdenta.
Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu ráðstefnunnar.
