Um stofnunina

Image
Aðalbygging Háskóla Íslands

Um stofnunina

Málvísindastofnun Háskóla Íslands er vísindaleg rannsóknastofnun. Meðal hlutverka Málvísindastofnunnar er:

  • Að vera vettvangur rannsókna í málvísindum og undirgreinum þeirra.

  • Að standa fyrir útgáfu, ráðstefnum, fyrirlestrum og annarri starfsemi sem styður rannsóknir og kennslu í málvísindum.

  • Að veita ungum fræðimönnum og framhaldsnemum í málvísindum aðstöðu og tækifæri til rannsóknastarfa.

  • Að efla tengsl rannsókna og kennslu.

  • Að sinna verkefnum á sviði málvísinda sem miða að þjónustu og fræðslu.

Þriggja manna stjórn stýrir stofnuninni og tvær rannsóknastofur starfa innan vébanda hennar.