Hljóð og hlustun
Bókin Hljóð og hlustun er kennslubók í framburði og hlustun og er ætluð byrjendum í íslensku sem öðru máli. Fjallað er um framburð einstakra hljóða og vísað í hlustunarefni á netinu með æfingum og dæmum sem tengjast bókinni. Einfaldar skýringarmyndir hjálpa nemendum að auka orðaforða sinn um leið og þeir æfa framburð.
Höfundar bókarinnar, María Garðarsdóttir ogSigríður Þorvaldsdóttir, eru kennarar í íslensku sem öðru máli við Háskóla Íslands. Þær hafa langa reynslu af námsefnisgerð og hafa skrifað og gefið út ýmiss konar kennsluefni fyrir ólíka hópa, jafnt byrjendur sem lengra komna, á ýmsum skólastigum.
Með bókinni fylgir eftirfarandi hlustunarefni og æfingar til frjálsra afnota fyrir notendur. Upplestur á hljóðskrám: Jón Karl Helgason, María Garðarsdóttir og Sigríður Þorvaldsdóttir.
Fyrsti kafli:
Annar kafli:
Þriðji kafli:
Fjórði kafli:
Fimmti kafli:
Sjötti kafli:
Sjöundi kafli:
Áttundi kafli:
Níundi kafli: