Um stofnunina
Um stofnunina
Málvísindastofnun Háskóla Íslands er vísindaleg rannsóknastofnun. Meðal hlutverka Málvísindastofnunnar er:
-
Að vera vettvangur rannsókna í málvísindum og undirgreinum þeirra.
-
Að standa fyrir útgáfu, ráðstefnum, fyrirlestrum og annarri starfsemi sem styður rannsóknir og kennslu í málvísindum.
-
Að veita ungum fræðimönnum og framhaldsnemum í málvísindum aðstöðu og tækifæri til rannsóknastarfa.
-
Að efla tengsl rannsókna og kennslu.
-
Að sinna verkefnum á sviði málvísinda sem miða að þjónustu og fræðslu.
Þriggja manna stjórn stýrir stofnuninni og tvær rannsóknastofur starfa innan vébanda hennar.