Tveggja andlaga sagnir í íslensku og færeysku (Ditransitives in Insular Scandinavian) er alþjóðlegt rannsóknarverkefni sem styrkt er af Rannsóknasjóði (Rannís) til þriggja ára, 2019–2021. Verkefnisstjórar eru Cherlon Ussery og Jóhannes Gísli Jónsson.

Markmið verkefnisins er að rannsaka tveggja andlaga sagnir í íslensku og færeysku með hliðsjón af tveggja andlaga sögnum í öðrum málum og almennum kenningum í setningafræði. Rannsóknin mun einkum beinast að þremur atriðum: (a) umröðun andlaga (þ.e. orðaröð þar sem beina andlagið fer á undan óbeina andlaginu), (b) táknun andlaganna (ólík föll og nafnliðir vs. forsetningarliðir) og (c) hugsanlegu sviði (scope) andlaganna tveggja. Í þessu skyni verða ýmsar kannanir lagðar fyrir íslenska og færeyska málhafa auk þess sem gögnum verður safnað úr Risamálheildinni og færeyska textasafninu á teldni.fo. Nánari upplýsingar um verkefnið er að finna á heimasíðu þess, tvoandlog.hi.is.

Image
""