Header Paragraph

Málþing um kynhlutlaust mál

Image

Undanfarin ár hefur skapast mikil umræða í íslensku samfélagi um kyn og hvernig félagslegar hugmyndir um kyn endurspeglast í íslensku máli, ekki síst frá málfræðilegu sjónarhorni. Þá hafa einnig orðið breytingar og tilbrigðum hefur fjölgað í notkun málfræðilegs kyns í máli fólks en æ fleiri málhafar reyna nú að færa mál sitt meira í átt til kynhlutlausara máls á einn eða annan hátt. Þessi þróun er að mestu leyti sprottin úr grasrótinni, enda tengist hún réttindabaráttu m.a. kvenna og jaðarsettra hópa, en í umræðu dagsins í dag birtast alls konar sjónarmið hinna ýmsu samfélagslegu hópa um efnið. Innan fræðasamfélagsins er einnig fjallað um kynhlutlaust mál frá ólíkum sjónarmiðum en sú fjölbreytilega umfjöllun hefur ekki endilega skilað sér til almennings eða út í samfélagsumræðuna. Hópur málfræðinga við Háskóla Íslands, sem er í þann mund að stofna Rannsóknastofu um félagsmálvísindi, og Íslensk málnefnd tóku höndum saman í byrjun ársins 2022, með það markmið að opna fræðilega umræðu um kynhlutlaust mál fyrir almenningi. Fyrsta skrefið í átt að þessu markmiði er að halda málþing um kynhlutlaust mál þann 30. apríl 2022 þar sem boðsfyrirlesarar úr íslensku fræðasamfélagi kynna rannsóknir sínar og miðla þekkingu sinni um efnið frá ólíkum sjónarhornum. Málþingið verður haldið í Veröld - húsi Vigdísar - laugardaginn 30. apríl frá 13:00 til 16:00.

Fyrirlesarar

  • Anton Karl Ingason – Hefð, jafnrétti og blandaðar sjálfsmyndir
  • Finnur Ágúst Ingimundarson – Mál og kyn í ljósi sögu og samtíma
  • Guðrún Þórhallsdóttir – Hvað er kynhlutleysi? Sjónarmið, röksemdir, hugtök og heiti
  • Hildur Lilliendahl Viggósdóttir – „Að berja niður venjulegt málfar meirihlutans í pólitískum tilgangi“
  • Höskuldur Þráinsson – Hvað eru kynin mörg?
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir – Merking, málfræði og mannréttindi
  • Fundarstjóri er Eiríkur Rögnvaldsson sem jafnframt opnar málþingið.

Málþingið er öllum opið

Nánari upplýsingar á vef Árnastofnunar.