Header Paragraph
Tilkynning um aðalfund
Aðalfundur Málvísindastofnunar verður haldinn þriðjudaginn 10. júní kl. 14.30 í Eddu á 2. hæð (þar sem kennslustofur HÍ eru). Fundurinn verður í opnu nemendarými sem er strax til vinstri þegar komið er inn á ganginn. Kaffiveitingar í boði.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, þ.e. ársreikningur og ársskýrsla fyrir 2024, og umræður um ýmis mál.
Atkvæðisrétt á fundinum eiga fastir kennarar á Hugvísindasviði sem eiga aðild að stofnuninni en seturétt eiga einnig nýdoktorar og doktorsnemar í íslenskri málfræði.
Við vonumst til að sjá ykkur sem flest.
Fyrir hönd stjórnar,
Kolbrún Friðriksdóttir