Rannsóknastofa í táknmálsfræðum
Rannsóknastofa í táknmálsfræðum
Rannsóknastofa í táknmálsfræðum er starfrækt við Háskóla Íslands og heyrir undir Hugvísindasvið. Hún byggist á samstarfi Málvísindastofnunar og Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra og starfar innan vébanda Málvísindastofnunar. Markmið Rannsóknastofu í táknmálsfræðum er að stuðla að auknum rannsóknum á táknmáli, táknmálssamskiptum, túlkun, málþroska táknmálstalandi barna og kennslufræði táknmáls og táknmálstúlkunar og samvinnu milli þeirra sem þær stunda til að tryggja sem besta nýtingu þekkingar og fjármuna.
Stjórn 2023-2024
- Júlía G. Hreinsdóttir, fagstjóri íslensks táknmáls á Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra, julia@shh.is
- Rannveig Sverrisdóttir, lektor í táknmálsfræði við Háskóla Íslands, rannsve@hi.is
- Guðný Björk Þorvaldsdóttir, táknmálstúlkur á leikskólanum Sólborg og sjálfstætt starfandi fræðimaður.
Á myndinni eru núverandi og fyrrverandi stjórnarmenn, Júlía G. Hreinsdóttir, Nedelina Ivanova, Rannveig Sverrisdóttir og Guðný Björk Þorvaldsdóttir.

- Ráðstefna norrænna táknmálstúlka í Reykjavík 30. maí-1. júní 2025.
- ISGS 2025, International Society for Gesture Studies, heldur ráðstefnu í Nijmegen, Hollandi dagana 9. -11. júlí 2025.
- ICED 2025, International Congress on the Education of the Deaf (ICED), ráðstefna um menntun döff verður haldin í Róm dagana 7. - 11. júlí 2025
- EFSLI, European Forum of Sign Language Interpreters, heldur ráðstefnu í Lissabon, Portúgal dagana 12.-14. september 2025.
- SignCAFE3 verður haldin í Varsjá, Póllandi dagana 18.-19. september 2025, sjá http://sign.uw.edu.pl/en/sign-cafe-3/
- Wasli, World Association of Sign Language Interpreters, heldur ráðstefnu í Abu Dhabi, Dubai árið 2027.
- Sextánda TISLR ráðstefnan verður haldin í Stokkhólmi 13.-16. Júní 2028.
Rannsóknastofa í táknmálsfræðum er starfrækt við Háskóla Íslands og heyrir undir Hugvísindasvið. Hún byggist á samstarfi Málvísindastofnunar og Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra og starfar innan vébanda Málvísindastofnunar á grundvelli Starfsreglna um fyrirkomulag rannsóknastofa innan Hugvísindasviðs.
Innan Málvísindastofnunar eru stundaðar rannsóknir í málvísindum og undirgreinum þeirra innan Hugvísindasviðs Háskóla Íslands, þ.m.t. í táknmálsfræði. Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskerta (SHH) hefur margþætt hlutverk, meðal annars að annast rannsóknir á íslensku táknmáli. Rannsóknastofa í táknmálsfræðum er samstarfsvettvangur fræðimanna Málvísindastofnunar og SHH sem stunda rannsóknir á íslensku táknmáli.
Markmið Rannsóknastofu í táknmálsfræðum er að stuðla að auknum rannsóknum á íslensku táknmáli, táknmálssamskiptum, túlkun, málþroska táknmálstalandi barna og kennslufræði táknmáls og táknmálstúlkunar og samvinnu milli þeirra sem þær stunda til að tryggja sem besta nýtingu þekkingar og fjármuna. Þessum markmiðum byggst rannsóknastofan einkum ná með því að:
- Hafa samráð um skipulagningu rannsóknarverkefna þannig að þau styrki hvert annað.
- Vinna sameiginlega að einstökum rannsóknarverkefnum.
- Vinna sameiginlega að söfnun gagna og þekkingar sem nauðsynleg eru fyrir rannsóknir á táknmáli og nýtast m.a. við gerð námsefnis og táknmálsorðabókar.
Aðild og ábyrgð
Ábyrgðarmaður stofunnar er greinarformaður í táknmálsfræði við HÍ. Rétt til aðildar að stofunni eiga fræðimenn innan Málvísindastofnunar og Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra sem stunda rannsóknir á táknmáli, táknmálssamskiptum, túlkun, málþroska táknmálstalandi barna og kennslufræði táknmáls og táknmálstúlkunar. Ábyrgðarmaður stofunnar og forstöðumaður SHH leiða starfið í sameiningu og leggja mat á það ár frá ári hverjir eru virkir í rannsóknastarfi og eiga að fá boð um að taka þátt í starfi rannsóknastofunnar, m.a. með boðum um að sækja fundi. Þetta getur í undantekningartilvikum átt við rannsakendur utan þessara tveggja stofnanna og þá í takmarkaðan tíma og í afmörkuðum verkefnum.
Fundir og fjármál
Stefnt er að því að fundir með rannsakendum á sviði táknmálsfræði verði haldnir á eins til þriggja ára fresti, eftir því sem samstarfið og verkefni gefa tilefni til, en smærri fundir um einstök viðfangsefni eða verkefni eftir atvikum. Þá verða skýrslur um starfið birtar á heimasíðu stofunnar árlega eða í það minnsta annað hvert ár.
Rannsóknir innan Rannsóknastofu í táknmálsfræðum eru að jafnaði fjármagnaðar með styrkjum og vinnuframlagi fastra starfsmanna. Stofan nýtur ekki fastra fjárframlaga en getur sótt um starfstengda styrki innan Hugvísindastofnunar og Málvísindastofnunar.
Reglur Rannsóknastofu í táknmálsfræðum eru staðfestar af stjórn Málvísindastofnunar.
Innan rannsóknastofunnar eru unnin ýmis verkefni sem snúa að íslensku táknmáli og menningu döff. Aðilar rannsóknastofunnar tóku á árunum 2011-2015 þátt í evrópska verkefninu SignGram sem styrkt var af COST. Markmið verkefnisins var að varpa ljósi á málfræði táknmála og gefa út bók sem gæti nýst sem grunnur fyrir málfræðinga og aðra sem rannsaka vilja málfræði táknmála (sjá hér upplýsingar á alþjóða táknun). Bókin er í opnum aðgangi og má finna hér.
Í júní 2017 var FEAST ráðstefnan haldin í Reykjavík og sáu aðilar rannsóknastofunnar um skipulagningu. Ráðstefnan var í samvinnu við SIGN-HUB verkefnið.
Á síðunni SignWiki má lesa ýmsar greinar um táknmál.
Upplýsingar um birtar málfræðirannsóknir sem gerðar hafa verið á íslenska táknmálinu má finna hér.
Facebook-hópur um rannsóknir á íslensku táknmáli.
Samstarfssamningur HÍ og Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra
SLLS
Aðilar Rannsóknastofu í táknmálsfræðum fylgja siðareglum samfélags táknmálsfræðinga, Sign Language Linguistic Society (SLLS). Reglurnar hafa verið þýddar á íslenskt táknmál.