
Rannsóknastofa í táknmálsfræðum er starfrækt við Háskóla Íslands og heyrir undir Hugvísindasvið. Hún byggist á samstarfi Málvísindastofnunar og Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra og starfar innan vébanda Málvísindastofnunar. Markmið Rannsóknastofu í táknmálsfræðum er að stuðla að auknum rannsóknum á táknmáli, táknmálssamskiptum, túlkun, málþroska táknmálstalandi barna og kennslufræði táknmáls og táknmálstúlkunar og samvinnu milli þeirra sem þær stunda til að tryggja sem besta nýtingu þekkingar og fjármuna.