Header Paragraph

Ráðstefnurit um annarsmálsfræði, menningu og notkun tækni í kennslu tungumála

Image
Novel Techniques and Approaches in Language Teaching

Nýtt ráðstefnurit hefur verið gefið út af Rannsóknarstofu í máltileinkun (RÍM) við Hugvísindasvið Háskóla Íslands.  

Ráðstefnuritið heitir Novel Techniques and Approaches in Language Teaching (NoTALaT) og inniheldur sextán greinar sem leggja áherslu á miðlun þekkingar á sviði annarsmálsfræða, menningar og notkun tækni í kennslu tungumála. Hægt er að nálgast það sem PDF-skrá hér.

Formleg kynning á útgáfu ráðstefnuritsins verður haldin í fyrsta bitaboxi RÍM á næsta haustmisseri á Heimasvæði tungumála á 2. hæð í Veröld 26. september kl. 15–15.45. Sjá nánar.

Útgáfan var samstarfsverkefni Árnastofnunar, Konstantín-háskóla í Nitra í Slóvakíu og uppbyggingarsjóðs EES sem styrktu jafnframt útgáfuna. Ritstjórar eru Branislav Bédi, verkefnisstjóri á íslenskusviði Árnastofnunar, og Lenka Štvrtecká, lektor við Konstantín-háskóla í Nitra.

Image
Novel Techniques and Approaches in Language Teaching